31 október 2008

Með fingurinn á þjóðarpúlsinum

Um þetta ætti að ríkja nokkuð góð sátt. 


Bóndi minn er reyndar á því máli að hlutfallið ætti að vera 100% konur næstu þrjú ár. 

En hann er náttúrlega geggjaður og ábyrgðarlaus listamaður. Og með Davíð Oddsson á heilanum.

3 ummæli:

Unknown sagði...

sammála Oddný, á við sama vandmál að stríða þ.e. DO

Kristján V

Nafnlaus sagði...

Geir Haarde forsætisráðherra.

„Evrópusambandið hefur frumkvæðið að því að viðra þessa hugmynd við okkur í gegnum sendiráðið í Brussel. Það byggir meðal annars á því að ég skrifaði Sarkozy Frakklandsforseta fyrr í mánuðinum til að útskýra stöðuna á Íslandi,” segir Geir Haarde um mögulegt lán Íslendinga úr neyðarsjóði Evrópusambandsins. Á vefútgáfu Times í dag segir Joaquín Almunia, framkvæmdastjóri peninga- og efnahagsmála ESB, að enn sem komið er séu Íslendingar og Ungverjar einu umsækjendurnir úr sjóðnum en heildarupphæðin í sjóðnum er 25 milljarðar evra.

Geir segir allt of snemmt að segja til um hversu hátt lánið yrði eða hvað fælist í láninu og skilyrðum sem því myndi fylgja. Framkvæmdastjórnin eigi eftir að fara yfir málið og svo Evrópusambandsþingið. Geir segir að lán úr þessum neyðarsjóð sé ekki eitthvað sem geti komið í staðinn fyrir eitthvað af því sem nú þegar er byrjað að ræða. Frekar yrði um viðbót við aðrar ráðstafanir að ræða ef til lánsins úr neyðarsjóðnum kæmi.”

Flottir…farnir að betla hjá í nýstofnuðum neyðarsjóði ESB. Viljiði ekki sækja um fyrst? Nei, kannski bara fá allt fyrir ekkert? Eða er þá til ókeypis hádegisverður eftir allt?

Nafnlaus sagði...

Í skyndihjalp er kennt ad nota ekki thumalfingurinn til ad athuga med puls.....